Reykrör – Þak

Þakfrágangur

► Það er mismunandi frágangur á reykröri eftir aðstæðum. Það sem ræður hverju sinni er annars vegar óskir kaupanda, gerð eldstæðis, byggingarefni húss og þakefni.
► Reykrör og sá hluti sem kemur í snertingu við reyk og hita er alltaf smíðað úr ryðfríu stáli.
► Reykrör getur bæði verið einangrað niður að eldstæði, en að lágmarki 25cm fyrir neðan gegnumtak í millilofti og eða þaki.
► Þar sem reykrör er einangrað er notuð sérstök brunaeinangrun sem er steinull án bindiefna og sérstaklega ætluð til einangrunar á reykrörum.
► Utanum einangrunina er val um mismunandi hlífðarkápur. Kápa getur t.d. verið galvanizeruð, aluzink, ryðfrítt og einnig er valkostur með mismunandi liti með duftlökkun.
► Þaksæti eða þétting í þakið er ávallt sérsmíðað miðað við aðstæður hverju sinni.
► Það er mjög mikilvægt að þakhalli sé mældur nákvæmlega.


SKOÐA – MYNDASAFN