Reykrör – Vegg


Veggfrágangur

► Það er mismunandi frágangur á reykröri eftir aðstæðum. Það sem ræður hverju sinni er annars vegar óskir kaupanda, gerð eldstæðis, byggingarefni húss og þakefni.

► Reykrör og sá hluti sem kemur í snertingu við reyk og hita er alltaf smíðað úr ryðfríu stáli.

► Reykrör getur bæði verið einangrað niður að eldstæði eða frá þeim stað sem gegnumtak er í vegg og eða þaki.

► Þar sem reykrör er einangrað er notuð sérstök brunaeinangrun sem er steinull án bindiefna og sérstaklega ætluð til einangrunar á reykrörum.

► Utanum einangrunina er val um mismunandi hlífðarkápur.

► Þaksæti eða þétting í þakið og eða vegg er ávallt sérsmíðað miðað við aðstæður hverju sinni.

SKOÐA – MYNDASAFN

vegg_teikn

Vegg-hus-2